Fyrsti fundur fyrir Sæluvikuverkið 2013

„Langar þig að leika, sminka, hvísla, smíða eða hvað annað sem þarf til að koma leiksýningu á fjalirnar?“ er spurt í nýjasta eintaki Sjónhornsins. Fyrsti fundur Leikfélags Sauðárkróks fyrir Sæluvikuverkið 2013 verður haldinn nk. mánudag, 4. febrúar, kl. 20 í Húsi frítímans og eru áhugasamir hvattir til að mæta.

Sæluvikuverkið í ár er frumsamið verk eftir Guðbrand Ægir Ásbjörnsson og Árna Gunnarsson, með lögum eftir Geirmund Valtýsson. Leikstjóri er Guðbrand Ægir.

Í auglýsingu segir að um sé að ræða stórt og mikið verk og þarfnast mikils mannskaps svo það er mikilvægt að mæta á fund eða láta heyra í sér fyrir fund svo hægt sé að sjá hversu stór hópurinn verður sem kemur að sýningunni.

Þeir sem vilja vera með en komast ekki á fundinn geta haft samband við formann LS, Sigurlaugu Dóru, í síma 862 5771 fyrir fundinn.

16 ára aldurstakamark er fyrir þátttöku í uppsetningu leiksýningarinnar.

 

Fleiri fréttir