Fyrsti heimaleikur meistaraflokks á Sauðárkróki á morgun
Á morgun laugardag fer fram fyrsti heimaleikur meistaraflokks í fótbolta á íþróttasvæðinu á Sauðárkróki er Tindastólsstúlkur taka á móti stöllum sínum í Fram í 1. deildinni. Ekki er svo gott að leikurinn fari fram á aðalvellinum sem enn er í gjörgæslu því hann er settur á miðvöllinn á æfingasvæðinu.
Samkvæmt heimildum Feykis fékkst undanþága frá KSÍ til að hafa leikinn á þessum velli en hún fékkst ekki fyrir meistaraflokk karla þar sem meiri kröfur eru gerðar til aðstæðna og fer sá leikur fram á Blönduósi í kvöld. (Minnir þetta óneitanlega á pistil sem er í Dreifaranum á Feyki.is í dag).
Leikurinn fer fram laugardaginn 15. júní kl. 14:00.
Aðgangseyrir 500 kr.
Allir á völlinn og styðjum stelpurnar!