Fyrsti leikurinn í einvígi Tindastóls og Þórs er í kvöld
Fyrsti leikurinn í einvígi Tindastóls og Þórs frá Þorlákshöfn fer fram í kvöld, föstudaginn 20. mars, og hefst kl. 19:15 líkt og lög gera ráð fyrir. Stuðningsmenn Tindastóls eru hvattir til að láta ekki sitt eftir liggja og mæta með báðar hendur klárar í klapp og raddböndin rétt stillt til rosalegrar hvatningar.
Að sögn Stefáns Jónssonar, formanns körfuknattleiksdeildar Tindastóls, eru menn klárir í slaginn og hann lofar því að það verður mikið um dýrðir á heimaleikjum Tindastóls í úrslitakeppninni þar sem að m.a. skotleikur Dominos verður í gangi á milli 1. og 2. leikhluta og 3. og 4. leikhluta.
Leikurinn gengur út á að fjórum boltum er kastað upp í stúku og fá þeir sem að grípa þá að spreyta sig á vellinum. Börn, 14 ára og yngri, og kvenmenn skjóta frá þriggja stiga línunni og karlar og meistaraflokksleikmenn kvenna skjóta frá miðlínu. Sá sem hittir skotinu fær ársbirgðir af Dominos-pizzum (52 pizzur) að launum.
Blaðamaður Feykis náði í skottið á körfuboltafjölvitringnum Rúnari Birgi Gíslasyni á Smettinu og fékk upp úr honum nokkur fróðleikskorn varðandi einvígi Tindastóls og Þórs. Þannig er þetta ellefta skipti sem lið Tindastóls kemst í úrslitakeppnina, síðast árið 2012. Liðin hafa aldrei mæst í úrslitakeppni áður en bæði lið hafa komist einu sinni alla leið í úrslitarimmuna, Þórsarar á sínum tíma sem nýliðar í deildinni, en hvorugt náði því að verða Íslandsmeistari. Liðin hafa mæst tvívegis í vetur; Tindastóll vann heimaleikinn örugglega 110-90 en Þórsarar höfðu betur í Þorlákshöfn, 97-95, í hnífjöfnum leik.
Tveir leikmanna Tindastóls hafa leikið með liði Þórs. Svavar Birgisson spilaði fjóra leiki með þeim árið 2003 og þá var Darrel Flake liðsmaður Þórsara um tíma. Að sögn Rúnars geta að minnsta kosti tveir leikmanna Þórs rakið ættir sínar í fjörðinn fagra; Tómas Heiðar Tómasson er ættaður frá Uppsölum í Blönduhlíð og Oddur Ólafsson er sonur Möggu frá Víðidal sem er svo systir Péturs í KS í Varmahlíð ef það liðkar eitthvað fyrir ættfræðinni.
Það er þó ólíklegt að þeir félagar verði með þessi góðu tengsl í huga þegar þeir mæta í Síkið í kvöld, enda má fastlega gera ráð fyrir miklum hörkuleik.
Áfram Tindastóll!