Fyrstu verkfallsaðgerðir í Skagafirði um miðjan apríl

„Þeir sem hafa rétt til að kjósa um verkfallsaðgerðir fá á næstu dögum bréf, þar sem gerð er grein fyrir kosningunum. Atkvæðagreiðslan verður rafræn og stendur frá kl. 8:00 á mánudaginn þann  til miðnættis þann 30. mars. Gert er ráð fyrir að niðurstaðan liggi fyrir 31. mars, rúmri viku áður en aðgerðirnar eiga að hefjast,“ segir Þórarinn G. Sverrisson formaður Öldunnar stéttarfélags í Skagafriði.

Starfsgreinasamband Íslands, sem fer með samningsumboð fyrir um ríflega tíu þúsund manns, hefur boðað til umfangsmikilla verkfallsaðgerða frá og með 10. apríl næstkomandi. Viðræðum sambandsins við Samtök atvinnulífsins var slitið fyrir liðlega viku síðan en mikið skildi þá á milli samningsaðila og ekkert þokaðist í samningsátt.

„Í ljósi stöðunnar sem upp er komin, er Starfsgreinasambandið nauðbeygt til að hefja undirbúning aðgerða og leita heimildar hjá sínum félögum til verkfallsboðunar. Mikilvægt er að þátttakan í atkvæðagreiðslunni verði góð, enda er samstaðan beittasta vopn verkalýðshreyfingarinnar. Verkfall er neyðarréttur, það skal undirstrikað hér. Komi til verkfallsaðgerða, er ábyrgðin vinnuveitenda, sem virðast neita með öllu að viðurkenna að lægstu launin eru ekki sæmandi þjóð sem kennir sig við velferð,“ segir Þórarinn.

Fyrstu aðgerðir í Skagafirði 16. apríl

Verði verkfallsboðun samþykkt, verður allsherjarvinnustöðvun 10. apríl frá hádegi til miðnættis sama dag á félagssvæðum þeirra 16 aðildarfélaga sem veitt hafa Starfsgreinasambandi Íslands umboð.

„Þann 16. apríl verður vinnustöðvun frá miðnætti til miðnættis á félagssvæði Öldunnar og aftur 27. apríl. Öll félögin fara svo í verkfall 30. april frá hádegi til miðnættis. Svo þyngjast þessar aðgerðir enn frekar, því alla virka daga frá 12. til og með 22. maí verður allherjarvinnustöðvun og frá og með 26. maí hefst svo ótímabundin allsherjarvinnustöðvun allra félaganna.“ 

Viss um að verkfallsaðgerið verði samþykktar

Þórarinn segir að vonandi náist að semja í tæka tíð, en mikilvægt sé að þátttaka í atkvæðagreiðslunni verði góð.  „Hlutverk samninganefndarinnar er að ná fram ásættanlegum samningum og þá er líka eins gott að nefndin hafi fullan stuðning allra. Við getum ekki sætt okkur við að sitja enn eina ferðina eftir í launum eða kjörum, miðað við aðra hópa samfélagsins. Sjálfur er ég handviss um að verkfallsaðgerirnar verða samþykktar, samstaðan er beittasta vopnið í kjarabaráttunni. Þess vegna er svo mikilvægt að fólk taki þátt í atkvæðagreiðslunni,“  segir Þórarinn.

/KEP

Fleiri fréttir