Gæran 2015 í myndum
feykir.is
Skagafjörður, Listir og menning
17.08.2015
kl. 12.39
Tónlistarhátíðin Gæran 2015 fór fram á Sauðárkróki um helgina. Hörkustemning var í húsnæði Loðskinns föstudags- og laugardagskvöld þegar hver hljómsveitin steig á svið og tryllti lýðinn.
Dagskrá hátíðarinnar var fjölbreytt og metnaðarfull. Hátíðin var vel sótt og mikil ánægja meðal hátíðargesta, jafnt sem og skipuleggjenda, með hátíðina. Staðið var fyrir svokallaðri „off-venue“ dagskrá í fyrsta sinn, þar sem haldnir voru tónleikar víða um bæinn að laugardeginum, og heppnaðist hún mjög vel að sögn gæruliðans Adams Smára Hermannssonar, skipuleggjanda hátíðarinnar.
Að neðan eru svipmyndir frá föstudags- og laugardagskvöldinu. Myndir frá sólóistakvöldinu sl. fimmtudag má sjá hér.