Gæran opnar fyrir forsölu miða  

Tónlistarhátíðin Gæran er haldin í sjötta skiptið og verður haldin dagana 13.-15. ágúst í húsnæði Loðskinns á Sauðárkróki. „Við erum búin að leggja mikið kapp í að byggja upp góða umgjörð í kringum hátíðina fyrir bæði gesti og listamenn,“ segja nýir aðstandendur Gærunnar.

Ný framkvæmdastjórn tók við á þessu ári með nýjum áherslum og hefur sett sér þau markmið að gera hátíðina fjölskylduvænni. Að þessu sinni hafa skipuleggjendur hátíðarinnar ákveðið að fækka hljómsveitum til að gefa listamönnum meira svigrúm og þétta dagskránna.

Um 60 hjómsveitir sóttu um að komast að í ár og var mikil vinna að velja úr þeim frábæra hópi. Meðal þeirra tónlistamanna sem koma fram í ár eru Páll Óskar, Bjartmar Guðlaugsson, Geirmundur Valtýs, Amabadama og Dimma ásamt fleirum.

Forsala miða fer fram á www.tix.is og mun miðinn í forsölu kosta 6900 kr. Einnig mun vera hægt að nálgast miða í sölutjaldi hátíðarinnar og mun miðinn þá kosta 7900 kr.

Allar frekari upplýsingar um Gæruna má finna á fésbókarsíðu Gærunnar.

Dagskrá hátíðarinnar er eftirfarandi:

-Sóló-
Gillon
Óskar Harðar
Axel Flóvent
Bergmál
Hemúllinn

-Fös-
Trukkarnir
Dalí
Röskun
Páll Óskar (a.k.a. Paul Oscar)
Lockerbie
DIMMA
Geirmundur Valtýsson

-Lau-
Vio - band
Alchemia band
Stafrænn Hákon
Lára Rúnars
Bjartmar Guðlaugsson
The Roulette
Amaba Dama

/fréttatilkynning

Fleiri fréttir