Gæsaveiðar í Húnaþingi vestra

Gæsir á flugi. Mynd: Pexels.com
Gæsir á flugi. Mynd: Pexels.com

Á vef Húnaþings vestra er að finna tilkynningu um fyrirkomulag gæsaveiða í eignarlöndum Húnaþings vestra haustið 2018 en það er með eftirfarandi hætti: 

1.  Veiðimönnum með gilt skotvopnaleyfi og veiðikort útgefið af Veiðistjórnunarsviði Umhverfisstofnunar stendur til boða að kaupa sérstakt veiðileyfi útgefið af Húnaþingi vestra er veitir þeim einum heimild til gæsaveiða í eignarlöndum sveitarfélagsins. Um verður að ræða leyfi á þrjú svæði.

     Svæðin eru:  

  •  Eignarhlutur Húnaþings vestra í Víðidalstunguheiði austan Víðidalsár ásamt jörðinni Öxnatungu.
  •  Víðidalstunguheiði vestan Víðidalsár ásamt jörðunum Stóru-Hlíð, Stóra-Hvarfi og Króki.
  •  Eignarhlutur Húnaþings vestra í Arnarvatnsheiði og Tvídægru.

2.  Hvert veiðileyfi gildir þann dag sem tilgreindur er á viðkomandi leyfi og er útgefið innan þess gæsaveiðitíma sem umhverfisráðuneytið hefur gefið út vegna ársins 2018. Leyfið veitir einungis skráðum handhafa þess heimild til veiða á umræddu svæði á áðurnefndum tíma.

3.  Verð fyrir hvert leyfi er kr. 9.000,- á dag. 

4.  Fjöldi veiðimanna á veiðisvæði er takmarkaður við 4 byssur á hverju svæði á dag og tekið skal fram að leyfishafar hafa einir heimild til veiða á umræddum svæðum.   Veiðimenn eru hvattir til að tilkynna veiðar án leyfis til eftirlitsmanns.

5.  Með vísan til 7. greinar Fjallskilasamþykktar Húnaþings vestra er óheimilt að nýta hunda og flygildi (dróna) til veiða fyrr en fyrstu göngum á viðkomandi afrétti er lokið.

6.  Fjallskiladeildir í Húnaþingi vestra hafa heimild til að loka vegum og vegslóðum sem eru á forræði sveitarfélagsins án fyrirvara ef talið er að þeir liggi undir skemmdum vegna tíðarfars og umferðar. Þannig veitir veiðileyfið ekki tryggingu fyrir því að ávallt sé hægt að aka að veiðisvæði.

Þess er vænst að veiðimenn virði það fyrirkomulag sem hér er kynnt og viðurkenni að það sé sanngjarnt og eðlilegt að greiða hóflegt gjald fyrir aðgang að náttúruauðlindum.   

Kort af veiðisvæðum

Gæsaveiðisvæði 1 og 2 - Víðidalstunguheiði
Gæsaveiðisvæði 3 - Arnarvatnsheiði og Tvídægra 

 

Veiðileyfi verða eingöngu seld hjá Ferðaþjónustunni Dæli sími 451 2566.  Netfangið er daeli@daeli.is.   Allar upplýsingar um gæsaveiðar á þessu svæði eru veittar í Dæli.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá.

Feykir áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg.

Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir