Galakvöld Tindastóls í lok apríl

Laugardaginn 28. apríl nk. stendur knattspyrnudeild Tindastóls fyrir einstöku Galakvöldi sem verður haldið í Frímúrarasalnum á Sauðárkróki. Þar verður lögð áhersla á að gestir njóti alls hins besta í þjónustu, mat og drykk ásamt metnaðarfullrar dagskrár sem í boði verður og að sjálfsögðu verða gestir að mæta í sínu fínasta pússi þetta kvöld.

Miðasala hefst 1.apríl en einungis 150 miðar verða til sölu.

Matseðill kvöldsins verður meiriháttar en það verður  meistarakokkurinn Þráinn Freyr Vigfússon, yfirmatreiðslumaður á Kolabrautinni í Hörpunni sem mun töfra fram herlegheitin.

  • Þráinn Freyr Vigfússon:
  • Matreiðslumaður ársins á Íslandi 2007
  • 1.sæti í One World matreiðsluálfukeppninni 2008 í Rússlandi
  • 2.sæti í keppni matreiðslumanna Norðurlanda árið 2009
  • 7.sæti í virtustu matreiðslukeppni heims; Bocuse dOr, sem er heimsmeistarakeppni einstaklinga.

Frekari og nánari dagskrá verður birt innan tíðar.

/Fréttatilkynning

Fleiri fréttir