Galdrakarlinn í Oz frumsýndur í dag - Myndband

Tíundi bekkur Árskóla frumsýnir í dag leikritið Galdrakarlinn í Oz. Sýnt er í Bifröst og eru allir hvattir til að kíkja á skemmtilegt leikrit. Söguna um Dóróteu og ævintýri hennar í töfralandinu þekkja flestir en þar lendir hún í ýmsum raunum ásamt hundinum sínum, Tótó, huglausa ljónsins, heilalausu fuglahræðunni og hjartalausa skógarhöggsmanninum. Saman leita þau að galdrakarlinum sérfróða í von um að hann geti hjálpað þeim með sín helstu vandamál.

Sýningar verða í Bifröst sem hér segir:

  • Þriðjudagur 12. mars kl. 17:00 og 20:00 (miðapantanir frá kl. 14:00-20:00).
  • Miðvikudagur 13. mars kl. 17:00 og 20:00 (miðapantanir frá kl. 14:00-20:00).
  • Fimmtudagur 14. mars kl. 17:00 (miðapantanir frá kl. 14:00-17:00).
  • Föstudagur 15. mars kl. 17:00 (miðapantanir frá kl. 14:00-17:00).

Miðapantanir í síma 453-5216

Miðaverð:

  • 5 ára og yngri kr. 500,-
  • Grunnskólanemendur kr. 1000,-
  • Fullorðnir kr. 1500,-

Vinsamlegast athugið að ekki er tekið við greiðslukortum.

Feykir kíkti á æfingu hjá krökkunum um helgina og tók upp nokkur mikilvæg augnablik hjá Dóróteu og vinum hennar.

http://www.youtube.com/watch?v=WBoyFT_m-gA

Fleiri fréttir