Gaman að sjá tvö bestu lið deildarinnar mætast í úrslitum
Feykir sendi nokkrar spurningar nú í morgunsárið á gamlar og góðar körfuboltakempur í tilefni af einvígi Tindastóls og KR um Íslandsmeistaratitilinn. Fyrstur til að svara er Björgvin Reynisson, Króksarinn hárnetti, sem spólaði um völlinn sem leikstjórnandi fyrir bæði Tindastól og KR seint á síðustu öld. Hann er nú búsettur í Grafarvoginum og hefur enn gaman að körfubolta.
Hvernig líst þér á viðureign KR og Tindastóls um Íslandsmeistaratitilinn? - Það er gaman að tvö bestu lið deildarinnar í vetur mætist í úrslitunum. Það kom ekki á óvart að KR séu í úrslitum, en ég hefði ekki veðjað á Tindastól áður en mótið byrjaði. Þeir eru hins vegar búnir að spila gríðarlega vel í vetur og í mínum huga annað af tveimur bestu liðunum.
Hverjir eru styrkleikar Vesturbæinga? -KR er með menn eins og Helga, Brynjar, Craion og Darra sem geta klárað leiki. En ef Pavel er á fullum snúning, þá eru þeir sérstaklega erfiðir. Griðarlega erfitt að dekka þann dreng.
Hvað hefur glatt þig mest í leik Tindastóls í vetur? - Vörnin er það sem hefur staðið uppúr hjá Tindastól i vetur. Búnir að vera alveg grjótharðir frá upphafi tímabils. Og hvað liðið nær vel saman. Mér finnst hreint lygilegt hvað þjálfarinn hefur náð að pússa saman gott lið á fyrsta árinu.
Hvernig spáir þú að einvígið fari? -Hver vinnur? Ég á frekar von á að KR taki þetta í fimm leikjum, en það kæmi mér ekki vitund á óvart ef Stólarnir tækju þetta. Sterk vörn og yfirvegaður leikur er sterk blanda.
Á að mæta í DHL-hölina í kvöld? -Jú, það er ekki útlokað að maður kíki vestur í bæ í kvöld.