Sveitarstjóra falið að ganga frá leigusamningi vegna bráðabirgðavanda Birkilundar
Á fundi um húsnæðisvanda leikskólans í Varmahlíð sl. mánudagskvöld kom fram að samstarfsnefnd Akrahrepps og Svf. Skagafjarðar væri að vinna að bráðabirgðalausn sem felst í því að koma á fót smábarnadeild. Þar var sagt að viðræður væru í gangi við eigendur fyrrum pósthússins í Varmahlíð um að fá þar inni. Í fundi sínum í gær samþykkti byggðarráð Svf. Skagafjarðar að fela sveitarstjóra að ganga frá leigusamningi við Kaupfélag Skagfirðinga um leigu á húsnæðinu.
Í fundargerð byggðarráðs segir að jafnframt að byggðarráð samþykki að starfsemi Birkilundar verði að hluta í þessu húsnæði til bráðabirgða og að framkvæmdafé við breytingar þess verði teknar af fjárveitingu ársins 2015 vegna leik- og grunnskóla í Varmahlíð.