Gefa filmu í tilefni af bleikum mánuði

Krabbameinsfélag Skagafjarðar tekur þátt í árveknis- og fjáröflunarátaki um krabbamein og konur. Í tilefni af bleika mánuðinum býður félagið bleika filmu frítt fyrir þá sem hafa áhuga á að lýsa hús sín bleik.
Filmuna er hægt að nálgast hjá Helgu Gígju Sigurðardóttur í VÍS á afgreiðslutíma.
/Fréttatilkynning