Gefandi starf að stýra tónlistarskóla

Norðanátt tók Elínborgu Sigurgeirsdóttur tali nú á dögunum þar sem rætt var um tónlistarskólann og útgáfu geisladisks sem hefur að geyma lög eftir Elínborgu sjálfa. Elínborg segir það vera mjög gefandi starf að stjórna tónlistarskóla, þó það geti vitaskuld stundum verið erfitt. „Að stýra skóla með 109 nemendaígildi er vinna og ábyrgð“ segir hún. Það þarf líka margt að smella saman. Í upphafi annar þarf að púsla öllu vel saman til að reyna að verða við óskum fólks þar sem það er oft á tíðum margt annað í gangi, t.d. í tómstundum fólks.

Kennarar við tónlistarskólann í vetur eru átta talsins. Þau eru, auk hennar sjálfrar, Daníel Geir Sigurðsson, Guðmundur Helgason, Guðmundur Hólmar Jónsson, Ingibjörg Pálsdóttir, Ólöf Pálsdóttir, Páll Eyjólfsson og Sigrún Dögg Pétursdóttir. Elinborg segir jafna ásókn vera í nám á fjölbreytt hljóðfæri. Þannig sé alltaf mikil ásókn í nám á gítar og trommur. Þónokkuð af nemendum stundar nám í söng og þeir sem eru að læra á blásturshljóðfæri eru heldur fleiri en áður. Þá er svipuð ásókn í píanónám og verið hefur auk þess sem kennt er á strengjahljóðfæri.

Þá berst talið að væntanlegum geisladiski hennar. Elínborg hefur lengi vel verið í því að semja lög af og til og frá því í júní 2009 hefur hún samið mikið af lögum. Afraksturinn er geisladiskur sem er væntanlegur nú á næstu dögum. „Þessi diskur er minningardiskur um Egil Gunnlaugsson, manninn minn, sem dó 31. ágúst 2008“ segir Elínborg. Hún sagði það oft hafa tekið á tilfinningarnar að vinna að geisladisknum. Geisladiskurinn sé til að heiðra minningu Egils og hafi hjálpað henni í sorginni. „Það má segja í rauninni að þetta sé nokkurs konar minningargrein mín, af því að ég gat aldrei skrifað neina minningargrein þá sé þetta minningargrein til Egils frá mér“. Elínborg dvaldist á heilsuhælinu í Hveragerði sumarið 2009 og byrjaði hún þar að semja af krafti. „Þar kynntist ég Magnúsi Þór Sigmundssyni og hann gerði fullt af lögum fyrir mig“, segir Elínborg. Hún segir að lögin hafi bara byrjað að streyma, stundum hafi hana dreymt þau og stundum hafi þau komið allt í einu. Lögin á geisladisknum eru ellefu talsins og að sögn Elínborgar eru þau mjög mismunandi, „sum eru sungin, sum eru spiluð og sum eru svona einsöngslög og önnur eru meiri popplög eða svona sving-lög“. Elínborg er höfundur allra laganna á disknum og sá hún um útsetningu þeirra. Hún fékk mæta menn til að semja ljóð við lögin, þá Héðinn Unnsteinsson, Magnús Þór Sigmundsson, sr. Magnús Magnússon og Pétur Aðalsteinsson. Lögin hefur hún verið að kynna af og til á ýmsum tónleikum en ekki diskinn í heild sinni. Elínborg segist ekki endilega hafa átt von á því að allir yrðu eins tilbúnir að hjálpa og raun bar vitni. „Það sem einkennir þennan disk er að það eru svona í kringum tuttugu flytjendur sem koma fram og flestir af þeim, þar að auki upptökumenn og mixari á disknum, eru fyrrverandi nemendur tónlistarskólans sem ég er búin að stýra á þriðja áratug.“ Hún segir marga hafa styrkt hana við gerð geisladisksins. Auk þeirra sem komu að gerð disksins þá var hún styrkt af einstaklingum, fyrirtækjum og fékk hún einnig styrk frá menningarsjóði Norðurlands vestra. Til að byrja með verður Elínborg með geisladiskinn hjá sér og að sjálfsögðu verða haldnir útgáfutónleikar í framhaldinu.

Elínborg segir tónlistarskólann hafa gert mörgum það kleift að stunda músík, bæði hér heima og hjálpað nemendum út í framhaldsnám. Hún færir öllum þeim sem hún hefur mætt í vinnu sinni við tónlistarskólann miklar þakkir sem og öllum íbúum Húnaþings vestra.

Mynd og texti: Norðanátt.is

Fleiri fréttir