Geitafjör á Grænumýri gerði lukku
Í gær var blásið til geitafjörs á Grænumýri í Blönduhlíð, sem var hluti af Barnamenningardögum í Skagafirði. Boðið var upp á fjölskyldustund í fjárhúsunum á Grænumýri þar sem skoða mátti geitur og kiðlinga og hlusta á tónlist úr smiðju Disney og Abba.
Barnamenningardögum er nú lokið í ár en þeir verða aftur á sínum stað á næsta ári. Meðfylgjandi myndband er fengið af fésbókarsíðu viðburðarins, sem og myndin sem fylgir fréttinni.