Gengur á ýmsu í Hólaskóla
Það gekk á ýmsu á Hólum sl. fimmtudag þegar kunnátta í skyndihjálp var æfð á gögnum Hólaskóla. Samkvæmt heimasíðu Hólaskóla er gerð krafa um að starfsmenn hafi lokið skyndihjálparnámskeiði í mörgum greinum skólans og haldi síðan þekkingunni við.
Slíkt námskeið er til dæmis liður í námi verðandi reiðkennara og að þessu sinni voru reiðkennaranemar á 1. ári æfa sig í skyndihjálp. Meðfylgjandi mynd tók Karl Lúðvíksson en fleiri myndir má skoða á heimasíðu Hólaskóla.