Gersemar og gleðigjafar

Á morgun 10. júní kl 14:00 mun Minjahúsið á Sauðárkróki opna með nýjum sýningum þar sem þrír skagfirskir listamenn eru kallaðir til leiks og enn hafa áhrif á samtíð okkar þótt gengin séu. Þetta eru þau Guðrún frá Lundi sem skrifaði ófáar bækurnar á fullorðinsárum, Eyþór Stefánsson tónskáld og Jóhannes Geir listmálari.

Í minjahúsinu er enn hægt að ferðast aftur í tímann og sjá gömlu verkstæðin sem hafa vakið mikla athygli gesta og hinn margfrægi Þverárfjalls-hvítabjörn tekur á móti ferðalöngum. Í húsinu er einnig geymslusýning þar sem lagðir eru fram merkilegir munir úr eigu safnsins.

Sýningarnar og upplýsingaverið í húsinu verða opin í sumar milli klukkan 13 og 21 alla daga vikunnar.

Fleiri fréttir