Gestir farnir að streyma á Landsbankamót
Það byrjaði að lifna yfir tjaldstæðinu á Sauðárkróki í gær þegar fyrstu gestirnir mættu á Landsbankamót stúlkna í knattspyrnu sem fram fer á Sauðárkróki nú um helgina en mótið verður sett á morgun.
Á mótinu munu stelpur í 7. – 5. flokk kvenna etja kappi í knattspyrnu auk þess sem boðið verður upp á kvöldvöku og Friðrik Dór mun syngja fyrir stelpurnar. .Mótið verður sett í fyrramálið og verður þá spiluð knattspyrna frá morgni til kvölds en mótinu lýkur síðan á sunnudag.