Gísli sækir hanskann á hilluna
Gísli Eyland Sveinsson sem varið hefur mark Tindastóls um áraraðir hefur ákveðið að taka fram hanskana á ný eftir árshvíld. Gísli sem er 37 ára gamall hefur gríðarlega langan feril að baki en hann hefur líklegast leikið um 270 m.fl. leiki. Gísli hefur leikið stórt hlutverk með félaginu í fjöldamörg ár og það er liðinu mikill styrkur að fá hann inn í hópinn að nýju.
Gísli lék síðast með Tindastóli árið 2009 en tók sér frí sl. keppnistímabil. Hann fékk hinsvegar félagaskipti um mitt síðasta ár yfir til 1.deildar liðs Þórs á Akureyri og leysti um stund markmannsvandræði þeirra. Gísli verður löglegur með Tindastóli á ný 20.febrúar.