Gjaldskrárbreyting samþykkt í byggðarráði
Á síðasta fundi byggðarráðs Sveitarfélagsins Skagafjarðar voru lögð fyrir drög að breyttri gjaldskrá Skagafjarðarveitna, sem samþykkt hafði verið af veitunefnd og vísað til byggðarráðs. Í drögunum er gert ráð fyrir breytingum á heimæðargjöldum í þéttbýli og dreifbýli ásamt föstu gjaldi fyrir mælaleigu. Einnig eru sett inn í gjaldskrána afsláttarákvæði fyrir stórnotendur og sprota- og nýsköpunarfyrirtæki.
Byggðarráð Sveitarfélagsins Skagafjarðar samþykkti framlagðar breytingar á gjaldskrá Skagafjarðarveitna með tveimur atkvæðum, fyrir sitt leyti og vísaði erindinu til afgreiðslu sveitarstjórar.
Bjarni Jónsson, fulltrúi vinstri grænni óskaði eftirfarandi bókað:
Mikilvægt er að geta laðað að nýja starfsemi í héraðið og auðvelda og styðja við nýsköpunar- og frumkvöðlafyrirtæki og talað hefur verið um það undanfarin misseri að geta nýtt Skagafjarðarveitur í þeim tilgangi. Hinsvegar þarf að skoða betur forsendur og afleiðingar slíkra breytinga á gjaldskrá Skagafjarðarveitna sérstaklega hvað varðar afslætti sem nema 70% fyrir stærri notendur. Nánari útfærslur þurfa að vera til staðar. Ástæða er til að skoða frekari þrepaskiptingu afslátta miðað við vatnsnotkun og tímalengd þeirra hverju sinni og hvernig er hægt að höfða sérstaklega til atvinnugreina eins og ferðaþjónustu, líftækni, ylræktar og fiskeldis. Fulltrúi V- lista situr því hjá við afgreiðslu á fyrirliggjandi gjaldskrárbreytingum. Bjarni Jónsson
Eftirfarandi óskuðu þá Stefán Vagn Stefánsson, fulltrúi B-lista, og Sigríður Svavarsdóttir, fulltrúi D-lista, bókað:
Með þessari aðgerð er verið að renna styrkari stoðum undir atvinnulíf á svæðinu og sjálfsagt að nota þær auðlindir sem sveitarfélagið hefur yfir að ráða. Mikilvægt að sveitarfélagið sé samkeppnishæft við önnur svæði þegar kemur að uppbyggingu atvinnustarfsemi í héraði. Stefán Vagn Stefánsson og Sigríður Svavarsdóttir.
Loks óskaði Gréta Sjöfn Guðmundsdóttir, fulltrúi K-lista, bókað:
Upplýsandi gögn er varða vinnu við breytingar á gjaldskrá liggja ekki fyrir á byggðaráðsfundi, undirrituð tekur því ekki afstöðu til afgreiðslu gjaldskrár á þessum fundi. Gréta Sjöfn Guðmundsdóttir, fulltrúi K lista.