Gjöf til minningar um Gunnar og Ragnheiði í Glaumbæ
feykir.is
Skagafjörður
16.06.2015
kl. 09.44
Sunnudaginn 7. júní s.l. afhentu systkinin frá Glaumbæ Glaumbæjarkirkju kertastand til minningar um foreldra sína, sr. Gunnar Gíslason og Ragnheiði Margréti Ólafsdóttur, en á þessu ári eru 100 ár liðin frá fæðingu Ragnheiðar og 101 ár frá fæðingu Gunnars.
Það var Gunnar Gunnarsson, Duggi, á Sauðárkróki sem hannaði og smíðaði kertastandinn og var honum þakkað fyrir hans mikla þátt í gjöfinni.