Glæsileg Héraðssýning á Vindheimamelum
Á Vindheimamelum í Skagafiði fór fram í síðustu viku Héraðssýning kynbótahrossa sem endaði með glæsilegri yfirlitssýningu á laugardaginn. Alls náðu 31 hross lámarkseinkunn sem nægir til að komast á Landsmót af þeim 203 hrossum sem skráð voru til leiks. Óhætt er að segja að Þóra frá Prestbæ hafi verið hross sýningarinnar.
Þóra hlaut hæstu aðaleinkunn sýningarinnar eða 8,75 og varð þar með hæst dæmda hross inn á Landsmót. Fyrir sköpulag fékk hún 8,31 og 9,03 fyrir hæfileika en þessi dómur er sá 6. hæsti sem gefin hefur verið í flokki hryssa 7 vetra og eldri. Í sama flokki varð Þrift frá Hólum með aðra hæstu einkunn eða 8,62 og fyrir sköpulag: 8,81 en 8,50 fyrir hæfileika.
Í flokki stóðhesta 7 vetra og eldri sáust einnig glæsilegar einkunnir en þar fékk Seiður frá Flugumýri II hæstu aðaleinkunn 8,69 en fyrir sköpulag fékk hann 8,59 og 8,76 fyrir hæfileika. Rétt á hæla honum kom Háttur frá Þúfum með aðaleinkunn upp á 8,68, sköpulag 8,61og hæfileika 8,73.