Glamúr og glöp á Golden Globes
Nú er Golden Globes verðlaunaafhendingin um garð gengin með öllum sínum glamúr og glæsileika. Í nokkra daga hefur Fröken Fabjúlöss legið yfir myndum af rauða dreglinum og pælt, spögglerað og vinsað úr það sem henni finnst standa uppúr, á hvorn veginn sem er.
Minna fór fyrir litagleðinni núna en oft áður, mikið um svarta og hvíta kjóla, en einnig svolítið um hálf húðlita kjóla- eitthvað sem fer einstaklega vel fyrir brjóstið á Fröken Fab þar sem henni finnst oft eins og stórstjarnan standi nakin þarna innan um papparassana... En misjafn er nú smekkur hvers og eins.
Í myndagalleríinu hér að neðan má finna þá kjóla sem Frökeninni fannst standa uppúr bæði bestu og verstu kjólarnir, og eru komment Fröken Fabjúlöss undir hverri mynd. Þeir þrír kjólar sem stóðu uppúr sem algjörlega fabjúlöss voru kjóarnir sem þær stöllur Kate Hudson, Heidi Klum og Katharine McPhee klæddust, einstaklega fallegir og myndum við hérna í tískuhorni Fabjúlöss gefa mikið fyrir að eiga þá inni í fataskáp hjá okkur!