Glaumbæjarkirkja vill hlutdeild í fjármunum ferðamanna

Á fundi byggðarráðs sveitarfélagsins Skagafjarðar síðast liðinn föstudag var tekið fyrir erindi frá sóknarpresti og sóknarnefndarformanni Glaumbæjarsóknar. Sr Gísli Gunnarsson sóknarprestur kom á fundinn til viðræðna.

Í apríl sl. hafði verið óskað eftir viðræðum við sveitarfélagið um að Glaumbæjarkirkja fái hlutdeild í þeim fjármunum sem ferðamenn skilja eftir í Glaumbæ. Var málinu vísað til Atvinnu-menningar – og kynningarnefndar til frekari skoðunar og umfjöllunar.

Fleiri fréttir