Gleðiganga Árskóla í dag

Hin árlega Gleðiganga Árskóla verður farin miðvikudaginn 1. júní frá Árskóla við Skagfirðingabraut klukkan 10:00. Gengið verður sem leið liggur upp að Heilbrigðisstofnun og þar verður skólasöngurinn sunginn. Þá er haldið niður á Skagfirðingabraut og gengið að Ráðhúsinu og niður að Árskóla við Freyjugötu þar sem grillað verður ofan í mannskapinn. Reiknað er með að skóla ljúki þennan dag klukkan 12:00. Viljum við nota tækifærið og bjóða alla bæjarbúa velkomna til að taka þátt í göngunni með okkur og gera sér glaðan dag í góðum félagsskap

Fleiri fréttir