Glingur og djásn frá Vicky vinkonu!!!

Fröken Fabjúlöss veit svo sannarlega að jólin eru að koma þegar föngulegir og fallegir englar Victoria´s Secret birtast í brjóstahöldum sem hlaupa á milljónum dollara í verði!! Fátt finnst Frökeninni jafn fallegt og þessir brjóstahaldarar sem eru þó svo mikið bruðl að flestum er nú nóg um!

Um miðjann október eru þessi rándýru brjóstahöld kynnt til leiks. Módelið sem fær að klæðast djásninu er valin úr röðum elítunnar innan Victoria´s Secret- úr hóp sem kallast Englar eða Angels eins og það kallast upp á hið engilsaxneska! Hámarkinu er svo náð þegar hin heppna þrammar tígulega niður sýningarpalla jólasýningar Victoria´s Secret í desember. Þetta árið mun Alessandra Ambrosio hljóta þann heiður og fer sýningin fram þann 4 desember og mun Fröken Fabjúlöss vera föst við skjáinn þá!!

Hér fyrir neðan eru myndir af öllum Fantasy brjóstahöldurunum sem hafa verið gerðir og undir myndunum má lesa kommsur frá Frk. Fab! Ohhh þetta er svo lekker!

Fleiri fréttir