Glitter-tastic!!!
Falleg, litrík og frumleg förðun er það sem á hug og hjarta Fröken Fabjúlöss meira en margt annað! Netrúnturinn alræmdi snýst oftar en ekki aðallega um þessi málefni og hefur Frk. Fab dottið niður á ansi margar bloggsíður fáránlega hæfileikaríkra förðunarfræðinga.
Á títtræddum netrúnt einn dag í seinustu viku datt Frk. Fab inn á förðunarblogg sem stökk beint inn á feivorits og verður þar framvegis. Glittergirlc heitir síðan og hefur slíkt hugmyndaflug sjaldan ratað inn á borð Fab heimsveldisins, og er frumleikinn algjörlega í fyrirrúmi!!!
Þessi stórkostlega stúlka sem er á bak við bloggið heitir Cecilie, er 22ja ára gömul og býr í Noregi. Hún virðist vera hugfangin af glimmeri og er litaglöð með afbrigðum, sem okkur hér í höfuðstöðvum Fab þykir nú bara alls ekkert mikið verra nema síður sé! Hún er með óteljandi myndir af förðunum sem hún hefur gert, og virðist hafa hugrekkið meðfram hæfileikunum til að ganga með svona litríkar farðanir dagsdaglega! Einnig hendir hún inn svokölluðum "tutorials" eða kennslumyndböndum og kennir sótsvörtum almúganum hvernig á að mála sig!
Þar sem við hérna í Fab horninu elskum liti, förðun, glimmer og glamúr, þá var það aldrei annað en borðleggjandi að við myndum kolfalla fyrir þessum frábæra listamanni sem hún Cecilie er og vonum við að hún eigi eftir að dæla inn nýjum förðunarmyndum svo lengi sem internetið getur tekið við!
Linkurinn á bloggið fallega: http://glittergirlc.com/