Góðir grannar í Efra-Núpskirkju
feykir.is
Skagafjörður
07.09.2015
kl. 13.54
Söngfjelagið Góðir grannar heldur tónleika í Efra-Núpskirkju í dag, sunnudaginn 13. september, kl. 14:00. Kórinn hefur starfað um árabil og heldur árlega jóla- og vortónleika.
Efnisskrá er fjölbreytt og flytur kórinn m.a. nokkur erlend lög tengd stríði og friði í tilefni þess að 70 ár eru liðin frá lokum seinni heimsstyrjaldar. Að sjálfsögðu verða svo Vísur Vatnsenda-Rósu á dagskránni. Kórstjóri er Egill Gunnarsson. Aðgangur er ókeypis.