Góður baráttusigur gegn Þrótti

Þriðja umferð í 1. deild karla í knattspyrnu hófst í gærkvöldi en þá gerðu Tindastólsmenn sér lítið fyrir og lögðu Þrótt á Valbjarnarvelli í Reykjavík í baráttuleik. Stólarnir eru því enn taplausir eftir þrjár umferðir en þetta var reyndar fyrsti sigurleikur liðsins í 1. deildinni í sumar.

Jafnræði var með liðunum framan af leik en það voru þó heimamenn sem fengu betri færi en Furnesinn í markinu varði vel. Eftir hálftíma leik gerðu Þróttarar sig seka um slæm mistök, Stólarnir náðu boltanum og komu honum fyrir markið þar sem Elvar Páll Sigurðsson var réttur maður á réttum stað og skoraði. Aðeins sex mínútum síðar bætti Tindastóll við marki en þar var á ferðinni Steven Beattie sem skoraði laglegt mark og staðan í hálfleik 2-0 fyrir Stólana.

Eðlilega héldu Tindastólsmenn sig aftar á vellinum í síðari hálfleik, þéttu pakkann og gerðu Þrótturum erfitt fyrir. Ekki síst eftir að þeir minnkuðu muninn með marki frá Oddi Björnssyni á 55. mínútu. Það getur hinsvegar oft verið hættulegur leikur að leyfa andstæðingnum að hafa boltann og var lukkan í liði Stólanna þegar leið á leikinn því Þróttarar fengu nokkur ágæt færi til að jafna. Þá vildu heimamenn fá vítaspyrnu en uppskáru aðeins gult spjald fyrir leikræna tilburði og ekki allir sáttir með þá niðurstöðu dómarans. Lokatölur 1-2 fyrir Tindastól sem hafa nú komið sér fyrir í efri hluta deildarinnar.

Næsti leikur Tindastóls átti að vera hér heima gegn Grindvíkingum um aðra helgi en eins og komið hefur fram þá er völlurinn nær dauða en lífi og verður ekki leikið á honum næsta mánuðinn. Hafa Tindastólsmenn komist að samkomulagi við Grindvíkinga um að vígsla leikjum sínum og verður því spilað í Grindavík á sjómannadaginn.

Fleiri fréttir