Golfkennara vantar á Stór-Þverárfjallssvæðið
Golfklúbbarnir á Sauðárkróki, Blönduósi og Skagaströnd hafa um nokkurt skeið leitað að golfkennara, einkum til að sjá um unglingastarfið á komandi sumri. Golfklúbburinn á Sauðárkróki hefur um langt skeið státað af öflugu unglingastarfi og hafa unglingar þaðan oft orðið Íslandsmeistarar í liðakeppni, og einstakingskeppni og klúbbarnir á Blönduósi og Skagaströnd hafa í hyggju að efla mjög starf sitt fyrir yngstu kylfingana.
Tilkoma heilsársvegar yfir Þverárfjall gerir golfkennara kleift að sinna kennslu á þessum þremur stöðum, án verulegra ferðalaga. Áhugasamir geta haft samband við Hjört Geirmundsson í síma 8217041 eða hjortur@fjolnet.is og fengið nánari upplýsingar.