Golfmót á Hlíðarendavelli
Sauðárkróksbakarí býður til golfmóts laugardaginn 13. október á Hlíðarendavelli á Sauðárkróki. Á heimasíðu Golfklúbbs Sauðárkróks kemur fram að veðurspáin lofi góðu og bakkelsi verður í verðlaun.
Um er að ræða punktakeppni og verður ræst út á öllum teigum samtímis kl. 10:00.
Skráning fer fram í gegnum netfangið gss@gss.is en einnig möguleiki á að skrá sig í skálanum.