Göngu og útivistarklúbbur í Skagafirði gengur af stað
Klúbburinn hóf starfssemi í fyrra og markmiðið var að sameina fólk sem hefur gaman af gönguferðum en vantar göngufélaga. Voru áætlaðar lengri göngur á fjöll u.þ.b. tvisvar í mánuði og styttri kvöldgöngur inn á milli. Þátttakan var stundum góð og stundum lakari en allar ferðir sem farnar voru tókust vel. Í kvöld er áætluð gönguferð um Merkigil.
Ákveðið var að hafa plan sumarsins með svipuðu sniði og í fyrra, fjöll á u.þ.b. þriggja vikna fresti og léttari kvöldgöngur inn á milli. Að auki má svo búast við að göngur séu í boði á Jónsmessu-, Kántrý- og Hólahátíðum og hjá Ferðafélagi Skagafjarðar og Ferðafélagi Siglufjarðar.
Klúbburinn heldur úti facebook síðu þar sem hægt er að kynna sér dagskrá og jafnvel auglýsa ferðir ef fólk vantar ferðafélaga. Göngu og útivistarklúbbur í Skagafirði er nafnið. Þá er einnig hægt að skrá sig á póstlista hjá sivadogg@simnet.is
Í kvöld er áætluð gönguferð um Merkigil og er lagt af stað frá N1 Ábæ kl. 19:00, eða hist við gilið Gilsbakkamegin kl 20:00. Þetta er ferð fyrir alla en við bendum fólki á að halda sig á gönguslóðum.
Ekki er um eiginlega farastjórn að ræða og fólk fer í göngur klúbbsins á eigin ábyrgð.
Dagskrá fyrir maí/júní lítur annars svona út:
Fim. 26. maí – kvöldganga, Merkigil
Lagt af stað kl. 20:00, reiknað með að gangan taki 2-3 tíma.
Sun. 5. júní – Tindastóll
Lagt af stað frá Hraksíðuá kl. 10:00 og gengið á Einhyrning.
16.-19. júní – Jónsmessuhátíð á Hofsósi, örugglega einhver skemmtileg ganga, sjá auglýsingar þegar nær dregur
Fim. 23. júní – kvöldganga, Kolkuós
Lagt af stað kl. 20:00, reiknað með að gangan taki 2-3 tíma.
/Fréttatilkynning