Gönguskilti sett upp við fjögur fjöll

Sveitarfélagið Skagafjörður hefur nú hafið uppsetningu upplýsingaskilta við upphaf gönguleiða á Mælifellshnjúki, Tindastól, Hólabyrðu og Ennishnjúk. „Þessi fjöll og fleiri kalla gönguhrólfa til sín og njóta heilsusamlegar gönguferðir þannig sívaxandi vinsælda meðal almennings og ferðamanna,“ segir á vef sveitarfélagsins.

Á föstudag voru sett upp slík upplýsingaskilti við upphaf gönguleiða á Tindastól og Ennishnjúk og á næstu vikum verður komið fyrir sambærilegum skiltum við upphaf gönguleiða á Mælifellshnjúk og Hólabyrðu.

Upplýsingaskiltið fyrir gönguleið á Tindastól er rétt neðan stikaðrar leiðar á Stólinn, norðaustan við Hraksíðuá. Upplýsingaskiltið fyrir gönguleið á Ennishnjúk er við bæinn Enni í Unadal.

Gerð skiltanna naut styrks úr Framkvæmdasjóð ferðamannastaða, hönnuður þeirra er Árni Tryggvason.

Fleiri fréttir