Gott mál ef fjármagnið fylgir
Félags- og tryggingamálanefnd Alþingis sendi Byggðaráði Skagafjarðar erindi þar sem óskað var eftir umsögn um frumvarp til laga um heilbrigðisþjónustu og málefni aldraðra (einbýli), 214. mál.
Byggðarráð Skagafjarðar tekur í afgreiðslu á málinu undir markmið frumvarpsins um bættan aðbúnað aldraðra á hjúkrunar- og dvalarheimilum. Jafnframt er lögð áhersla á að við samþykkt frumvarpsins fylgi jafnframt aukið fjárframlag frá ríki til málaflokksins til þess að markmið þess nái fram að ganga.