Grænfáninn á Hvammstanga

Leikskólinn Ásgarður á Hvammstanga fékk sl. fimmtudag afhentan Grænfánan frá Landvernd en afhendingin fór fram á Sumarhátíð skólans.Síðastliðin tvö ár hefur Ásgarður verið Skóli á grænni grein (Eco-Schools) er það alþjóðlegt verkefni sem Landvernd hefur rekið hér á landi í tæp 10 ár. Þátttökuskólar miða að því að geta flaggað alþjóðlegu viðurkenningunni Grænfánanum.

Sumarhátíðin er samstarfsverkefni foreldra og skóla og hófst dagskráin á afhendingu Grænfánans sem er fyrsti Grænfáninn sem kemur í Húnaþing vestra. í fréttatilkynningu frá skólanum segir; "Unnið hefur verið markvisst að því að tileinka sér umhverfisvæna hugsun og gera umhverfissáttmála sem segir: Að leikskólinn Ásgarður hefur tekið þá stefnu að vinna markvisst af því að nemendur, starfsfólk og skólasamfélagið í heild tileinki sér þá hugsun að vera ábyrgur gagnvart umhverfi og náttúru.”

Þegar fánin var í höfn var lagt af stað í skrúðgöngu um bæinn sem endaði með brekkusöng á lóð skólans við undirleik Guðmundar Helgasonar foreldris við skólann. Síðan voru grillaðar pylsur og Ásgarði færðar gjafir frá Húsfreyjunum á Vatnsnesi, Gærunum og Foreldrafélagi skólans.

“Fleirra hefur drifið á daga skólans sem gaman er að segja frá. Ásgarður sótti um styrk í Sprotasjóð sem er sjóður á vegum Mennta- og menningamálaráðuneytisins og fékk úthlutun í maí í verkefnið Leikur er barna yndi. Verkefnið flokkast undir nýsköpun í námsumhverfi. Megin markmið verkefnissins er að endurskipuleggja innra starf skólans og leikumhverfi nemanda með það fyrir augum að auka gæði frjálsa leiksins. Einnig er markmiðið að efla starfsfólk og dýpka þekkingu þeirra á flæði og hugmyndafræði Mihaly Csikszentmihalyi sem fjallar um jákvæða sálfræði Auk þess að finna leiðir til að nýta betur leikrými og leikefnivið skólans.

Það er með sanni hægt að segja að í Ásgarði www.leikskoli/asgardur sitji nemendur og starfsfólk ekki auðum höndum það er kraftur í hverjum kroppi”.

Fleiri fréttir