Gréta Sjöfn vill upplýsa almenning um hagræðingarhugmyndir
Á fundi Sveitarstjórnar Skagafjarðar sem haldinn var í gær gagnrýndi Gréta Sjöfn Guðmundsdóttir fulltrúi Samfylkingar, vinnubrögð sveitarstjórnar varðandi ráðgjafahóps sem skilaði af sér tillögum fyrir mánuði síðan en er farið með sem trúnaðarmál innan byggðaráðs. Vill hún að hagræðingarhugmyndirnar verði gerðar opinberar fyrir íbúum sveitarfélagins.
Á fundinum lagði Gréta Sjöfn eftirfarandi bókun fram:
„11 mánuðir eru síðan Sveitarstjórn samþykkti að beina því til nýrrar sveitarstjórnar að skipuð yrði nefnd allra flokka til að fara í heildarendurskoðun á rekstri sveitarfélagsins. Rúmur mánuður er síðan skipaður ráðgjafarhópur skilaði af sér sinni vinnu og kynnti byggðarráði hugmyndir hópsins. Byggðarráð hefur fjallað um niðurstöðurnar sem trúnaðarmál. Það er ljóst að tíminn vinnur ekki með sveitarfélaginu og hver mánuður líður án þess að meirihluti Framsóknar og Vinstri grænna, sem dregur vagninn í þessari vinnu, ákveði hvað á að gera með hugmyndir og vinnu ráðgjafahóps. Mikilvægt er að aflétta trúnaði fullrúa og áheyrnarfulltrúa byggðarráðs og kynna hagræðingarhugmyndir ráðgjafahóps fyrir íbúum sveitarfélagins.“