Grettir og Glaumur tókust á

Björgunarsveitin Grettir á Hofsósi fékk veglega áskorun s.l. fimmtudag frá unglingadeildinni Glaumi í sömu sveit  að taka þátt í ýmsum þrautum  sem fram fóru bæði á þurru landi sem og í sundlauginni.

Þrautirnar voru þannig að þátttakendur þurftu að hlaupa nokkra metra upp á hól og áttu að setja ennið á kvíslarnar snúa sér eins hratt og þau gátu í 15 hringi, hlaupa svo niður af hólnum inn á sparkvöll og tókst þetta allt mis vel sem fór eftir hversu fólk var ruglað eftir hringina. Þegar inn á sparkvöllinn var komið átti að sparka bolta í mark og svo sippa 15 sinnum og svo beint að grindverkinu og rétta upp hönd svo næstu keppendur færu af stað.

Þegar allir voru búnir og komnir að grindverkinu þá áttu viðkomandi að leggjast á völlinn öxl við öxl og hlaupa út á hinn endann og leggjast, fór þá næsti af stað alveg út á enda á sparkvellinum. Svo var farið til baka öllu snúið við.

Í sundlauginni voru gerðar tvær þrautir þar sem allir voru í fötunum og áttu að sýna jafnvægislistir á gulum hálfgerðum banana. Karlarnir sem voru í þyngri kantinum þóttu standa sig vel og einnig stúlkurnar í unglingardeildinni.

Það var Sylvía Magnúsdóttir umsjónarmaður unglingadeildarinnar Glaums sem sendi texta og myndir frá þessum skemmtilega degi og segir hún að allir hafi verið sammála um það í lokin að um jaftefli hafi verið að ræða í þrautakeppninni.

 

Fleiri fréttir