Grill og gleði í Varmahlíð

Á norðlensku sjónvarpsstöðinni N4 er matreiðsluþátturinn Matur og menning fastur dagskrárliður. Í sumar ferðast Júlli Júll um og kynnir sér grillmat á ýmsum stöðum, og gengur þátturinn í sumar því undir nafninu Grill og gleði. Í síðasta þætti heimsótti hann Svanhildi Pálsdóttur og fleira starfsfólk á Hótel Varmahlíð. Í fallegu umhverfi á tjaldsvæðinu er boðið upp á grillað hrossalund og meðlæti úr héraði. Þátturinn er aðgengilegur hér.

Fleiri fréttir