Grindvíkingar of góðir með Giordan Watson í geggjuðu stuði

Topplið Grindvíkinga heimsótti Síkið í kvöld og það var ekki stórt vandamál fyrir Suðurnesjamennina að leggja lið Tindastóls. Þeir náðu forystu eftir mínútu og létu hana aldrei af hendi, fóru frekar illa með Stólana í fyrri hálfleik en heimamenn gáfust ekki upp og löguðu stöðuna áður en yfir lauk. Lokatölur 96-105.

Tindastóll var yfir 2-0 og 4-3 og þeir náðu að hanga í Grindvíkingum fram eftir fyrsta leikhluta en þá breyttu gestirnir stöðunni úr 16-19 í 16-28. Grindvíkingar voru sterkir bæði í sókn og vörn og var leikstjórnandi þeirra, Giordan Watson, í þvílíkum ham að hann varð ekki stöðvaður í fyrri hálfleik, gerði þá 27 stig. Einnig voru Bullock og Sigurður Þorsteinsson geysisterkir. Stólarnir virkuðu hálf skeknir í fyrri hálfleik enda hegndu Grindvíkingar þeim fyrir hver mistök og þá var það ekki til að bæta málin að Helgi Freyr, Þröstur og Miller meiddust og aðeins Miller gat spilað seinni hálfleikinn. Annar leikhluti var í járnum framan af en gestirnir náðu 15 stiga forystu, 36-51, þegar Bullock tróð og ein og hálf mínúta var til leikhlés. Staðan í leikhléi var 40-56.

Þriðji leikhluti var fjörugur og bæði lið skoruðu grimmt en það var ekki til að gera heimamönnum lífið léttara að Páll Axel fór að skjóta á körfuna en hann hafði ekkert skorað í fyrri hálfleik enda fékk hann fá færi til þess. Grindvíkingar náðu 20 stiga forystu, 47-67, en Stólarnir náðu annað veifið að klóra aðeins í bakkann en voru oft ósáttir við störf dómaranna, Davíðs og Einars, og hafa þeir félagar örugglega einhvern tímann átt betri stundir með flauturnar. Skömmu fyrir lok þriðja leikhluta í stöðunni 65-84 var dæmt tæknivíti á bekkinn hjá Stólunum og gerðu gestirnir þá 6 stig í sömu sókn en Allen, sem átti ágætan leik, lagaði stöðuna fyrir Tindastól áður en leikhlutinn var úti, staðan 67-89.

Tindastólsmenn náðu síðan upp góðri baráttu í fjórða leikhluta og söxuðu á forskot Grindvíkinga sem voru sennilega nokkuð værukærir, enda sigurinn svo gott sem í höfn. Þeir virtust líka geta gefið í ef á þurfti. Svabbi náði að minnka muninn í 79-91 þegar fimm og hálf mínúta var eftir en þegar þrjár mínútur voru eftir var staðan 81-100. Þá náðu Stólarnir góðum kafla en það var of lítið of seint. Lokatölur 96-105.

Stólarnir máttu sín ekki mikils gegn Grindvíkingum í kvöld og er engin furða að lið þeirra trónir á toppi Iceland Express deildarinnar og aðeins tapað einum af 15 leikjum sínum í deildinni. Í liði Tindastóls var það helst Curtis Allen sem stóð upp úr en Miller og Helgi Rafn komu sterkir inn í síðari hálfleik. Watson gerði 40 stig og átti 7 stoðsendingar fyrir gestina og Bullock var með 22 stig.

Nú hafa Stólarnir tapað síðustu þremur leikjum sínum í deildinni og er það áhyggjuefni, nú þarf að fara að hala inn stig og reyna að tryggja sæti í úrslitakeppninni en þangað á liðið fullt erindi.

Stig Tindastóls: Allen 23, Miller 17, Helgi Rafn 16, Tratnik 14, Hreinsi 9, Svabbi 7, Helgi Freyr 6, Rikki 2 og Þröstur 2.

Fleiri fréttir