Gróðursetning til heiðurs Vigdísar Finnbogadóttur
feykir.is
Skagafjörður
23.07.2015
kl. 09.56
35 ár eru liðin frá því að Vigdís Finnbogadóttir var kjörin í embætti forseta Íslands, fyrst kvenna í heiminum sem þjóðkjörinn forseti. Af því tilefni voru gróðursettar þrjár birkiplöntur í Þuríðarlundi henni til heiðurs.
Þuríðarlundur er í skógrækt Skógræktarfélags Skagfirðinga í Reykjarhól, Varmahlíð. Forseti sveitarstjórnar sveitarfélagsins, hún Sigríður Svavarsdóttir, og Ragnheiður Guðmundsdóttir, formaður Skógræktarfélags Skagfirðinga, gróðursettu plönturnar. Ásta Pálmadóttir sveitastjóri var einnig með þeim til aðstoðar.
Birkitrén sem voru gróðursett eru af hinu beinvaxna og hvítstofna yrki 'Emblu' og eru hátt á annan metra að hæð og verða án efa til mikillar prýði.