Guðlaug Rún og Pétur Rúnar í eldlínunni á NM í Svíþjóð
Norðurlandamót yngri landsliða í körfubolta fer nú fram í Solna í Svíþjóð og leika Tindstælingarnir Pétur Rúnar Birgisson í U-18 og Guðlaug Rún Sigurjónsdóttir í U-16 landsliðum Íslendinga. Íslensku liðunum hefur gengið mjög vel og þau Guðlaug og Pétur einnig. Pétur varð hetja Íslendinga þegar hann tryggði Íslendingum sigur í fyrsta leik gegn Eistum í æsispennandi leik.
Nú þegar þriðji keppnisdagur er að renna upp hafa þrjú íslensk lið unnið tvo fyrstu leikina sína en eitt lið, U18 kvenna, tapað einum og vinna einn.
Hér að neðan er staðan í riðlunum hjá íslensku liðunum en það lið verður Norðurlandameistari sem vinnur riðlakeppnina, ekki er leikið til úrslita eins og síðustu ár en fyrirkomulagið breyttist með viðbótarliði Eista í hverjum aldurshópi.
HÉR er hægt að fara inn á heimasíðu sænska körfuknattleikssambandsins til að finna frekari upplýsingar um mótið.
Dagskráin er eftirfarandi:
10. maí · Föstudagur
- M-U16 · 13:00 Finland - Iceland
- W-U16 · 15:00 Finland - Iceland
- M-U18 · 17:00 Finland - Iceland
- W-U18 · 19:00 Finland - Iceland
11. maí · Laugardagur
- M-U16 · 13:00 Iceland - Sweden
- W-U16 · 15:00 Iceland - Sweden
- W-U18 · 17:00 Iceland - Sweden
- M-U18 · 19:00 Iceland - Swede
12. maí · Sunnudagur
- W-U16 · 15:00 Denmark - Iceland
- W-U18 · 15:00 Denmark - Iceland
- M-U16 · 15:30 Denmark - Iceland
- M-U18 · 17:00 Denmark - Iceland