Guðni, Kári og Diddi í Tindastól
Þrír leikmenn hafa fengið leikheimild með Tindastól fyrir næsta sumar, Skagfirðingarnir Guðni Þór Einarsson og Kári Eiríksson en þeir léku með Drangey á síðasta tímabili og svo Frammarinn Sigurður Hrannar Björnsson.
Guðni Þór Einarsson kemur frá Drangey en hann var einn besti maður liðsins á síðasta leiktímabili, spilaði 15 leiki og skoraði 6 mörk. Árið 2011 lék hann með 3. deildarliðinu Augnablik í Kópavogi en þar áður með Tindastóli.
Ein gömul af Kára tekin árið 2010.
Kári Eiríksson á svipaða sögu, lék með Drangey í fyrra, Augnablik árið þar áður en alinn upp í Tindastóli. Þá lék hann einn leik með HK í Borgunarbikarnum áður en hann gekk til liðs við Drangey.
Sigurður Hrannar Björnsson kemur til Tindastóls frá Safamýrarliðinu Fram en þangað kom hann árið 2007 frá Hollandi. Sigurður er markmaður og samkvæmt heimasíðu Tindastóls gengur hann undir nafninu Diddi.
Sigurður Hrannar Björnsson eða Diddi markmaður. Mynd: Tindastóll.is