Guðný, Gunna og Villi komin í undanúrslit Útsvarsins

Í gærkvöldi fór Útsvarslið Skagafjarðar á miklum kostum í Sjónvarpssal þegar þau Guðný, Guðrún og Vilhjálmur gerðu sér lítið fyrir og slógu út ágætt lið Akureyringa í spennandi og skemmtilegum þætti. Þar með tryggðu þau Skagafirði sæti í undanúrslitum Útsvars og er það í annað sinn á þremur árum sem lið Skagafjarðar nær svo langt í þessum sívinsæla sjónvarpsþætti.

Liðið er á þessu keppnistímabili skipað þeim Guðnýju Zoega fornleifafræðingi sem starfar á Byggðasafni Skagfirðinga, Guðrúnu Rögnvaldardóttur framkvæmdastjóra Staðlaráðs Íslands og nema í spænsku við Hí og loks Vilhjálmi Egilssyni rektor Háskólans á Bifröst.

Keppnin milli Akureyringa og Skagfirðinga var lengstum jöfn og spennandi og skiptust liðin á um forystuna. Þegar kom að lokakaflanum, þar sem rétt svör gefa allt að 15 stigum, var staðan 42-38 fyrir Akureyri. Þá fór allt í baklás hjá vinum okkar á Akureyri sem sögðust þegar upp var staðið sennilega hafa gleymt fattaranum heima. Eina svarið sem Akureyringar höfðu rétt á þessum kafla var með hjálp símavinar en talsvert betur gekk hjá Guðnýju, Gunnu og Villa sem fögnuðu sætum sigri, 71-52.

Sem fyrr segir þá hefur lið Skagafjarðar einu sinni áður komist í undanúrslit í Útsvari og gerðist það vorið 2013. Lentu Skagfirðingar þá gegn hinu frábæra liði Fjarðabyggðar og máttu þola tap, 90-69. Að sjálfsögðu er til Wikipedia síða fyrir Útsvar og það má skoða hana með því að smella hér >

Fleiri fréttir