Gul og glaðleg á Ársölum í dag
Það voru glöð börn sem mættu gul og glaðleg á leikskólann Ársali í morgun en í dag föstudaginn 18. mars er gult þema í leikskólanum. Mæta þá allir í einhverju gulu, svo sem peysu, buxum eða með gula teygju í hárinu. Skemmtilegt uppbrot á vikunni þetta og spurning hvort fleiri fyrirtæki mættu ekki taka sér þetta til fyrirmyndar.