Gunnar yfirvélstjóri á Málmey hlaut Neistann

Á sjómannadaginn veittu TM og VM, Félag vélstjóra og málmtæknimanna, í 23. Skipti viðurkenningu fyrir yfirvélstjórastörf. Nefnist verðlaunagripurinn Neistinn og kom að þessu sinni í hlut Gunnars Sigurðssonar yfirvélstjóra á Málmey SK 1, eins og sagt er frá á heimasíðu Fisk Seafood ehf.

Tilgangur viðurkenningarinnar er að vekja athygli á hversu þýðingarmikið og krefjandi starf yfirvélstjórans er og um leið að verðlauna fyrir fyrirmyndarstörf.

Gunnar byrjaði til sjós árið 1985 og hefur frá árinu 1988 verið vélstjóri á skipum FISK Seafood ehf og undanfarin ár sem yfirvélstjóri.

Fleiri fréttir