Gvendardagur á Hólum
Á vef Hólaskóla segir frá því að miðvikudaginn 16. mars, var boðað til árlegs Gvendardags hér heima að Hólum, nánar tiltekið í Auðunarstofu. Samkoman var haldin í samvinnu Hóladómkirkju, Guðbrandsstofnunar og Menntaskólans á Akureyri.
Allnokkur hópur fólks sótti viðburðinn. Ræðumaður dagsins var Vilhjálmur Árnason prófessor í heimspeki við Háskóla Íslands. Vilhjálmur var meðal höfunda að siðfræðihluta skýrslu rannsóknarnefndar Alþingis um aðdraganda og orsakir falls íslensku bankanna. Í erindi sínu lagði Vilhjálmur út af lýðræði, undir yfirskriftinni Er lýðræði lausnarorð eða hluti vandans? Hugleiðing um íslenskt lýðræði. Erindi Vilhjálms var bæði fróðlegt og skemmtilegt og gerðu áheyrendur góðan róm að, sem meðal annars kom fram í líflegum umræðum og fyrirspurnum að erindinu loknu.
Annað mál á dagskrá var afhending styrks úr Áheitasjóði Guðmundar góða. Þó biskupstíð Gvendar heitins hafi lokið fyrir miðja 13. öld, þykir hann enn góður til áheita og safnast ávallt nokkur upphæð í sjóðinn, sem er í umsjá Hólanefndar. Hún úthlutar úr honum til góðra verka og/eða styrktar einstaklingum sem á þurfa að halda.
Þetta var fimmta úthlutun úr sjóðnum og að þessu sinni var fénu veitt til styrktar Þuríðar Hörpu Sigurðardóttur, sem veitti því viðtöku við athöfnina í gær. Sem kunnugt er, er Þuríður Harpa bundin við hjólastól eftir að hafa fallið af hestbaki fyrir nokkrum árum. Hún hefur hins vegar einsett sér að stíga upp úr þeim stóli og hefur m.a. leitað sér lækninga og endurhæfingar á Indlandi, þannig að styrkur sem þessi kemur henni vel. Það var vígslubiskup, Jón Aðalsteinn Jónsson, sem afhenti Þuríði Hörpu styrkinn.
Dagskráin var einnig prýdd tónlistaratriðum, þar sem Jón Þorsteinn Reynisson lék ýmis sígild verk í eigin útsetningu.