Hæ, hó og jibbíjei í Skagafirði
Að venju verður fjölbreytt hátíðar- og skemmtidagskrá á Sauðárkróki í tilefni af þjóðhátíðardegi Íslands. Þá verður nóg um að vera hjá Alþýðulist í Varmahlíð og ýmsir veitingastaðir bjóða upp á þjóðhátíðarkaffi eða glæsileg kaffihlaðborð í tilefni dagsins.
Dagskráin verður sem hér segir:
12:30 Andlitsmálun við Skagfirðingabúð. Félagar í Skátafélaginu Eilífsbúum selja gasblöðrur á vægu verði.
13:40 Skrúðganga frá Skagfirðingabúð að íþróttavelli.
14:00 Hátíðardagskrá á íþróttavellinum.
-Hátíðarræðu flytur Sigríður Svavarsdóttir, forseti sveitarstjórnar sveitarfélagsins Skagafjarðar.
-Fjallkonan flytur ljóð.
-Jón Arnór töframaður með sýningu.
-Útitónleikar þar sem fram koma Hafdís Huld, Róbert og Guðmundur, Pétur Örn og Einar úr Buffinu taka nokkur lög.
-Hús frítímans með leiki og þrautir.
-Hoppukastalar.
14:30 Skátatívolí á Flæðunum norðan sundlaugar.
-Candy flos til sölu.
Félagar í Alþýðulist verða með ýmiskonar handverk við hús félagsins í Varmahlíð frá kl. 14-17. Til dæmis verður kennt að þæfa utanum sápu. Pönnukökur og heitt á könnunni.
Kaffi í tilefni dagsins
Ýmsir veitingastaðir bjóða upp á þjóðhátíðarkaffi eða glæsileg kaffihlaðborð í tilefni
dagsins, sem Skagfirðingar geta keypt sér og bragðað brot af því besta.
Þjóðhátíðarhlaðborð verður á Kaffi Krók kl 14-17.
Þjóðhátíðarkaffi og kaka dagsins að hætti Áskaffis, Glaumbæ, kl. 15-17.
Hið vinsæla 17. júní kaffihlaðborð í Ljósheimum frá kl. 15-17.
Heitt súkkulaði og rjómaterta í Lónkoti frá kl. 14-16:30.