Hægt að nýta selaafurðir á Íslandi betur

Á fundi í deilunefnd Alþjóðaviðskiptamálastofnunarinnar (WTO) þann 25. mars 2011 lýsti Ísland yfir stuðningi sínum við Noreg og Kanada í máli þeirra gegn Evrópusambandinu vegna reglugerðar Evrópusambandsins sem kveður á um bann við innflutningi og almennum viðskiptum með selaafurðir inn á markaðssvæði ESB. Ekki mikið verslað með íslenskar selaafurðir.

Að sögn Ólafs Árnasonar framkvæmdastjóra Selaseturs Íslands á Hvammstanga er fylgst með þessu máli á þeim bænum þó ekki sé mikið í gangi með selaafurðir eins og er, og segir Ólafur alveg óhætt að segja að ekki sé verið að nýta þessa auðlind eins og hægt væri.

 -Við fylgjum stefnu um sjálfbæra þróun og auðvitað fellst í því nýting á okkar náttúruauðlindum að því marki að þær séu sjálfbærar. Mér finnst oft bera á því að misskilnings gæti þegar rætt er um sjálfbærni og er það miður, segir Ólafur.

Í tilkynningu frá sjávarútvegsráðuneytinu segir að þótt  þessi deila snúist um viðskipti með selaafurðir þá snýst hún í reynd um stærra mál, það grundvallaratriði að nýti þjóðir náttúruauðlindir sínar með sjálfbærum hætti þá hafi þær rétt til að eiga viðskipti með þær á alþjóðavettvangi.

Nú fer að líða að opnun Selasetur Íslands og segir Ólafur þennan árstíma fara í undirbúning fyrir komandi sumar, samskipti við ferðaskrifstofur, umsóknir um styrki og annað í þeim dúr.

-Einnig sinnum við rannsóknum allt árið svo þær eru á fullri ferð. Nú er mikið um að vera því framkvæmdir hafa hafist vegna flutnings á safni Selasetursins og við stefnum að því að opna nýja og spennandi sýningu í byrjun sumars.

Fleiri fréttir