Hafa áhuga á Landsmóti UMFÍ 50+

Félags- og tómstundanefnd Skagafjarðar hvatti á síðasta fundi sínum íþróttahreyfinguna í Skagafirði til þess að kanna hvort ástæða sé til þess að Skagafjörður sæki um að vera mótsstaður fyrir Landsmót UMFÍ 50+.

Kemur þessi hvatning nefndarinnar í framhaldi af erindi UMFÍ þar sem óskað var eftir umsóknum vegna umrædds landsmóts.

Fleiri fréttir