Hafna ósk um undirritun á skilmálabreytingu

Sveitarstjórn Húnaþings vestra hafnaði ósk stjórnar Hæðarinnar á Höfðabraut ehf. um undirritun skilmálabreytingar á skuldabréfi félagsins frá árinu 2002. Þáverandi sveitarstjóri er sagður hafa undirritað sjálfskuldarábyrgð í bága við ákvæði þágildandi sveitarstjórnarlaga og þar að auki var ekki verið aflað samþykkis þáverandi sveitarstjórnar. Þetta kom fram á 202. fundi Húnaþings vestra í þann 22. ágúst sl.

Stjórn Hæðarinnar á Höfðabraut ehf. (áður Forsvar ehf.) sendi sveitarstjórn erindi þann 11. júní 2012 þar sem óskað var eftir fyrrgreinda skilmálabreytingu þar sem sveitarfélagið er talið bera sjálfskuldarábyrgð á umræddu láni.

Málið var tekið fyrir á fundi sveitarstjórnar þann 14. júní sl. var þá var samþykkt að fela oddvita og sveitarstjóra að fara yfir tillögu Landsbankans um fjárhagslega endurskipulagningu Hæðarinnar á Höfðabraut ehf. með endurskoðanda og lögmanni sveitarfélagsins. Á fundinum 22. ágúst var farið yfir minnisblöð umræddra aðila.

Í bókun fundargerðar er rakin forsaga umrædds skuldabréfs sem er til komið vegna sölu Húnaþings vestra á eignarhluta sveitarfélagsins á efstuhæð Höfðabrautar 6 á Hvammstanga til Forsvars ehf. á árinu 2002.

„Kaupsamningur var undirritaður þann 7. mars 2002 með skilmálum um greiðslu kaupverðs, kr. 17 milljónir, með greiðslu skuldabréfs að fjárhæð 17 milljónir kr. útgefnu þann 1. mars 2002 sem greiðast skyldi með 80 greiðslum, fjórum sinnum á ári, á þriggja mánaða fresti, í fyrsta sinn 1. september 2004. Bréfið er tryggt með veði í eigninni og með 5,1% vöxtum og verðtryggt,“ segir í bókuninni en skuldabréfið var gefið út 1. mars 2002 með ofangreindum skilmálum.

Í bókun fundarins þann 22. ágúst segir að þann 13. júní 2002 framselur þáverandi sveitarstjóri Húnaþings vestra, Sparisjóði Húnaþings og Stranda, skuldabréfið með öllum réttindum sem þar greinir og tekst á hendur, f.h. sveitarfélagsins, sjálfskuldarábyrgð á skuldinni og kostnaði í samræmi við ákvæði bréfsins.

„Í útprentun frá sparisjóðnum, dags. 14. júní sama árs, kemur fram að ávöxtunarkrafa sé 8,75%. Uppreiknaðar eftirstöðvar séu kr. 17.100.698- og afföll séu kr. 4.033.745-. Núvirði bréfsins sé kr. 13.066.953-. En það var söluverð bréfsins til Sparisjóðs Húnaþings og Stranda og því sú fjárhæð sem sveitarfélagið fékk vegna umræddra viðskipta. Afsal til Forsvars ehf. var gefið út þann 14.desember 2004,“ segir í bókuninni.

Hagsmuna sveitarfélagsins gætt til hins ýtrasta

Sveitarstjórn Húnaþings vestra hafnar því ósk stjórnar Hæðarinnar á Höfðabraut ehf. með vísan til framlagðra minnisblaða lögmanns sveitarfélagsins, Ívars Pálssonar hrl., dags. 31. júlí 2012 og endurskoðunarfélags sveitarfélagsins, KPMG, Kristjáns Jónassonar og Sesselju Árnadóttur, dags. 12. júlí 2012, þar sem sveitarfélaginu sé slíkt óheimilt sbr. ákvæði 3. mgr. 69. gr. núgildandi sveitarstjórnarlaga nr. 138/2011.

Í umræddum minnisblöðum kemur jafnframt fram að undirritun þáverandi sveitarstjóra á sjálfskuldarábyrgð Húnaþings vestra hafi farið í bága við ákvæði þágildandi sveitarstjórnarlaga og þar að auki hafi ekki verið aflað samþykkis þáverandi sveitarstjórnar fyrir þeim gjörningi.

Þess vegna samþykkir sveitarstjórn Húnaþings vestra að hafna því að sveitarfélagið sé í sjálfskuldarábyrgð vegna umrædds skuldabréfs. Oddvita og sveitarstjóra falið að gæta ýtrustu hagsmuna sveitarfélagsins í málinu, svo sem fyrir dómstólum ef þurfa þykir.

 

Fleiri fréttir