Hafnar áframhaldandi undanþágu vegna bensíngeyma N1 í Varmahlíð

Heilbrigðisnefnd Norðurlands vestra hafnaði á fundi sínum í byrjun þessa mánaðar málaleitan N1 um undanþágu frá ákvæðum reglugerðar 35/1994 fyrir bensínstöð fyrirtækisins í Varmahlíð.

Hafði fyrirtækið frest til 11. júní til að gera úrbætur í samræmi við reglugerðina en virtist ekki hafa nýtt hann, að því er fram kemur í fundargerð. Með bréfi dags. 15. júní var síðan sótt um áframhaldandi frest til 31. desember en því hafnaði Heilbrigðisnefndin.

Boðar nefndin að beita 26. gr laga nr. 7/1998 til þess að knýja á um úrbætur. Verður forráðamönnum N1 boðið að tjá sig um málið í samræmi við 13. gr laga nr. 37/1993.

Fleiri fréttir